14. maí 2009

Hjólaskór í vanskilum



Lýsi eftir hjólaskónum mínum. Þeir eru af diadora gerð, brúnir og fallegir með klítafestingum. Fundarlaunum heitið.

Hvert erum við komin?


Gummi er búinn að taka saman þá vegalengd sem hóparnir hafa hjólað samanlagt. Við erum komin norður í land.

Gengið líka!




Þetta Hjólað í vinnuna tímabilið hef ég fyrst og fremst gengið í vinnuna. Í vetur byrjaði ég að labba frekar en hjóla þegar hjólið var ónothæft í smá tíma. Svo getur verið dálítið óþægilegt að hjóla yfir mesta veturinn þegar það er hvasst og hált. Gönguhraðinn er þá viðráðanlegri fyrir aðstæður.
Augljóslega er vegalengdin ekki svo mikil, hálfur þriðji kílómeter sem gerir um 20-25 mínútu ferðalag hvora leið. Það fannst mér í raun ákveðinn kostur, að eiga smá gönguferð út af fyrir mig á morgnana. Þá er þetta líka um klukkutíma hreyfing sem maður nær daglega í stað 20 mínútna alls ef ég hjóla. 
Spurningin er þá: Brennir maður fleiri hitaeiningum á klukkutíma göngu en 25 mínútu hjólaferð?

13. maí 2009

Staðan


Nú eru starfsmenn VSÓ Ráðgjafar búnir að hjóla rétt tæpa 1300 kílómetra samanlagt. Helsta framlagið kemur frá GörGum, þ.e. Garðbæingum og Göflurum. Hundraðogeitthvaðliðið leggur minnst til kílómetrana þrátt fyrir besta ástundun.


Hjólum saman og í samkeppni

Sem fyrr tekur VSÓ Ráðgjöf þátt í Hjólað í vinnuna.  Og að vanda verður fylgst með árangri, sorgum, sigrum og skrensi á þessu bloggi.  Fyrir þá sem vilja rifja upp stemninguna þá má skoða skrásetningar frá því í fyrra hér
Í ár keppa fjögur lið meðal starfsmanna VSÓ Ráðgjafar. Skipt er í lið eftir búsetu til að skapa þéttan kjarna á hverjum stað (og í von um að þeir ástundun aukist í öfugu hlutfalli við fjarlægð). Liðin eru:
  • GarGar (Garðbæingar og Gaflarar)
  • Úthverfir (Úthverfin)
  • Hundraðogeitthvaðliðið (Fólk úr pnr 10x)
  • Kaggar (Mestmegnis Kópavogur)